Mjög svo fróðleg málstofa var haldin í dag í stofu 101 um
próftöku á tölvur og kennslu meistaranema í grunnnáminu.
Þarna komu fram upplýsingar sem eiga erindi við alla
laganema. Mjög svo sorglegt var að sjá hve þátttaka var dræm og
mátti nánast telja nemendur hvers árs á fingrum annarrar
handar.
Mér finnst afar sérstakt að menn láti sig varða eigin hagsmuni og
deildarinnar, sem nær undantekningarlaust haldaust í hendur, í ræðu
og riti en þegar til kastanna kemur hafa menn engan áhuga á
því að sýna þeim sem barist hafa fyrir hagsmunum okkar þá virðingu
að mæta á svæðið þegar þessir sömu hagsmunir eru ræddir fyrir opnum
tjöldum. Við erum dugleg að ræða okkar í millum um meinbugi á
kennslu og próftöku en við látum svo ekki í okkur heyra þegar þess
gerist þörf.
Nemendur í lagadeild, varaformaður Orator, fulltrúi
Reiknistofnunar HÍ og Páll Hreinsson deildarforseti fluttu fróðleg
erindi. Páll Hreinsson nefndi hugmyndir sínar um gagnapróf (open
book exam) og þá framtíðarsýn sína að staðlaðir fyrirlestrar í
tilteknum kúrsum yrðu aðgengilegir nemendum á margmiðlunardiskum í
þeim tilgangi að kennslutímarnir sjálfir yrðu þá betur nýttir í
debate og fræðslu um nýjustu álitaefnin og helstu áhersluatriði
viðkomandi námsgreinar. Fulltrúi Reiknistofnunar kynnti tæknilega
framkvæmd próftöku á tölvur og upplýsti viðstadda um stöðu mála í
þeim efnum.
Mér finnst að menn mættu vera duglegri við að láta heyra í sér
og sýna lit, mæta á viðburði sem snerta hagsmuni okkar.
Það var afar leiðinlegt að sjá hvað mætingin á fundinn í dag var
dræm.
Að öðru, mér finnst að þegar menn standi sig vel þá eigi þeir hrós
skilið og ég vil nota þetta tækifæri til þess að þakka varaformanni
Orator, og stjórn félagsins, fyrir að hafa beitt sér sérstaklega
fyrir því að próftaka á tölvur verði að veruleika. Einnig vil
ég hrósa atvinnunefnd Orator (Valda og Kára), sem hefur komið
skemmtilega á óvart, og verið dugleg við að kynna nemendum laus
störf sem bjóðast laganemum til umsóknar.
Takk fyrir mig og sjáumst í næsta kokteil, vel blekuð að
vanda.